jæja þá er fyrsta helgarvinnudeiginum lokið og lifði ég
hann jú alveg af þrátt fyrir mikið djamm í gærkvöldi.....Ég held ég
eigi nú alveg eftir að meika þetta þósvo ég sé ekki mikið fyrir að
vinna um helgar, lítið að gera og sonna og ekki skemmir nú fyrir að
hafa Ernu þarna sér til skemmtunar
.....
En já eins og ég sagði var farið á dajmmið í gær... og
skemmti ég mér alveg hrikalega vel!!! enda ekki í leiðinlegum hóp
að mynda
þær komu til mín Alma Dögg, Nanna, Inga, og Kolla og við
spiluðum partý og co og snöfsuðum okkur eins og við ættum lífið að
leysa hehe... og í svona smá gríni er ég nú feigin að það skuli
ekki vera um hverja helgi sem ég fæ þennann hóp í heimsókn því jú
þær skiptust á að hella niður!! án spaugs þá var hellt niður
allavega 10 sinnum í gær enda vorum við farnar að grenja úr hlátri
af þessum ósköpum
en mikið var nú hleigið og rulgað... Alma dögg
var búin að fá sér nýann síma með myndavél og henni fannst þetta nú
ekkert smá flott aldrey átt svona áður hehehhehe.... Inga dagný tók
Guns and roses lag fyrir okkur á háa c-inu uppá old time sake
...
nanna var að sjálfsögðu með tópasinn og Kolla með eplasnafsinn og
vorum við ornar heldur góðar á því þegar við fórum loks í bæinn....
byrjuðum á hressó og þar var troðið að vanda!! en við auðvitað
tróðum okkur við eikkað borð þarna og hittum meðal annars gaurinn
sem keipti blokkina á Raufarhöfn... rugluðum auðvitað eikkað í
honum man samt ekkert hvað við vorum að seigja við
hann
svo lá leið okkar á uuuuu jú sólon og mættum við þá ekki
þeim skötuhjúum Guggu og Jóa og Alma Dögg þurfti nú endilega að
fara að ræða eikkað við þau, en við nanna vorum nú frekar snobbaðar
með okkur og vorum bara útundan... og töluðum við um að við
þirftum ekkert að vera ræða eitthvað við þau þósvo þau væru eikkað
þekkt í samfélaginu og biðum og biðum eftir Ölmu því jú Gugga og
jói höfðu svo mikið að seigja.... en haldiði þá ekki bara að Björn
Jörundur hafi ekki rennt sér uppað okkur og við farið að spjalla
við hann og vorum svo helteknar af honum (eða allavega ég) að við
misstum af því þegar Alma labbaði frammhjá okkur... og þar fór
kenningin um að þurfa ekkert að vera að laðast eitthvað að þekktu
liði en ég bara varð!! þær sem þekkja mig best vita það að ég
heillast alltaf af Birni jörundi hehe
en við síðasta stoppið var á Celtic en þar var liðið
frekar farið að slappast þannig ákvörðun var tekin um að fara bara
að síga heim á leið... með stoppi á hlölla áður eb við fengum
leigubíl....... og við Nanna vorum svo heppnar að við fengu hlölla
í boði hússins ef má orða það þannig hehe
eftir það var haldið
heim á leið sumir einir og aðrir ekki, hinir döðruðu bara við
leigubílstjórann
en þetta var allavega snilldar kvöld í alla staði og
takk fyrir það stelpur mínar verðum bara að gera þetta
oftar!!!
Ættla að láta þetta gott í bili, verð að fara að taka
til!! gat ekki gert það dag því ég var að vinna og vil nú síður að
Berglind komi heim í kvöld frá Danmörku beint í allar bjórdósirnar
og klístruðu snafsglösin
.....
veriði svo dugleg að kvitta....